Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

ÉG ELSKA ELSKA ELSKA ELSKA ÞETTA LAG!

Þetta er the wiggle wiggle song með honum Haffa Haff á laugardagskvöldið síðasta, og ég bara hreinlega elska það! það er svo töff og hann er svo glataður og þetta er bara allt svo hallærislegt að það verður bara geðveikt! ég veit nú ekki hversu margir ýta núna á PLAY en ég er allavega búin að létta mínu litla hjarta! W00t

OG ALLIR AÐ TJÚTTA MEÐ, reynið að ná dansinum hans, það er ekki erfitt! HAHAHA

 Góða stundir! GHG


check in, check out

þeir sem eru um það bil að deyja úr áhyggjum af mér vegna síðustu færslu fá núna smá fréttir:

bílinn minn er kominn í lag og það var hinn stórkostlegi bifvélavirki Jón, sem býr niðrá stokkseyri, sem gerði við krúttípúttið mitt ... þ.e.a.s. bílinn minn Whistling

annars allt gott að frétta, miðannarprófin að byrja í skólanum og það er ekkert annað hægt en að gleðjast yfir því! Sleeping

hef þetta ekki lengra í bili, stay tuned! GHG


æææiiiii

núna er bíllinn minn bilaður :( koma geðveik læti þegar ég starta honum og svo vill hann varla fara í annan og fjórða gír og er ógeðslega tregur á milli gíra :( ingólfur (http://sjoarasogur.blog.is) var að tala um að hann væri kannski orðinn bara fullur af skít og drullu en þetta á allt eftir að koma í ljós, krossiði fingurna fyrir fátæka námsmanninn sem þarf kannski að fara að kaupa nýjan gírkassa í bílinn sinn :(

fyrir ykkur sem vitið það ekki, þá á ég appelsínugulan vw golf, 98 módel ekki ólíkan þessum, bara 5 dyra

þakka ykkur fyrir að lesa þessa þunglamalegu færslu, kveðja GHG :)


hvað er að fólki?

Þessi mynd er alger gargandi snilld og það hæfir bara mjög múdinu í henni að það sé sungið, þó að ég sé ALLS ekki þessi gay and merry söngleikjatýpa þá hafði ég mjög gaman af þessari mynd.  Fyrir utan það að þá er þetta mikið meira bara svona blóðslettumynd heldur en nokkurn tíma hryllingsmynd, ég hef aldrei séð skorið á svona marga hálsa í einni mynd!  Þetta er bara ekta Tim Burton mynd, dimm, þung og drungaleg og það er bara æðislegt!
Helena Bonham Carter og Johny Depp fara á kostum svo að við tölum nú ekki um Sacha Baron Cohen sem fékk lítið en mjög eftiminnilegt hlutverk í myndinni. 

Skellið ykkur öll á þessa mynd og hafið gaman af, enda ekki annað hægt!

 

hafið það gott, ég er farin til tannlæknis! GHG


mbl.is Svekktir yfir söng í Sweeney Todd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Come ON!

hvað eru mörg ár frá því þau skildu?  og gellan ennþá í uppnámi? nei í alvöru talað, er þetta frétt? "Hún var ekki undir það búin hversu mjög það sló hana út af laginu þegar hún sá myndir af Angelinu og kúlunni hennar."

 ég sá myndir af köttum um daginn, mér fannst þeir sætir! það skrifar enginn blaðamaður um það á mbl.is!

 

góðar stundir! GHG

mbl.is Aniston sögð þjökuð af eftirsjá og trega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hér sé stuð

hér erum við stödd, fullt hús af fólki, þarf reyndar ekki mikið af fólki til að fylla húsið hans vignis :)en hér er gleði og gaman við völd, strákarnir í singstar og afgangurinn að hella í sig þar til gerðum mjöð! setning kvöldsins verður opinber á morgun! góðar stundir og stay tuned!!! GHG

 

singstar-2-party-ps2-003.jpg

 


JÆJA!

nú sit ég hérna kófsveitt fyrir framan tölvuna og í fyrramálið er próf í ensku, íslensku, spænsku og ofan á það allt saman á ég að flytja glærushow um Rupert Steiner í uppeldisfræði sem mér gengur bara ekki vel með!

þetta er ekkert sem fær mann til að slaka á og geta bara farið að sofa eins og eðlileg manneskja! ég sé ekki fram á mikinn svefn í nótt get ég sagt ykkur!

er ekki hægt að tala sig saman á meðal kennaranna svo að þetta komi ekki fyrir? svo gat ég ekkert lært í dag af því að ég var í skólanum til fjögur og var að vinna frá fjögur til tólf! mikið á mann lagt! en maður verður að eiga í sig og á!

wish me good luck! ég á eftir að missa vitið áður en ég næ þessum prófum! sheiza!!!

 

yfir og út! GHG


Höfundur

Guðrún Helga Guðmundsdóttir
Guðrún Helga Guðmundsdóttir

Börn eru hér inni á ábyrgð foreldra

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband